sunnudagurinn 5. september



Fréttir
01.05.10
Spaðadeildin
Spaðadeildin...

Mótanefndin (Arnþór, Gunni, Villi og Kiddi) settist niður í dag og gerði allt klárt fyrir fyrstu umferð Spaðadeildarinnar fimmtudaginn 20. maí. Um er að ræða einskonar prufukeyrslu í sumar sem verður síðan fylgt eftir með alvöru deild í haust ef vel tekst til.

Á heimasíðunni má sjá tengilinn "Spaðadeildin" og viljum við hvetja fólk til að kynna sér reglur keppninnar.

Einnig má sjá liðsmenn liðanna fimm og leikdaga.

Dregið var í Grays liðin tvö m.t.t. stigalistans.

Enn eru þónokkrir góðir spilarar liðalausir og geta menn barist um þá þangað til 18 maí.

Hafi menn eitthvað út á liðskipanina að setja þá skal hafa samband við mótanefnd.

Ennþá á eftir að finna stelpur í Dunlop og Wilson. Það verður þó ekki vandamál enda miklir kvennabósar í þessum liðum, lesist Bjarni.

Æskilegt er þó að öll liðin hafi í það minnsta tvær stelpur. Margar nýjar stelpur eru að koma upp eins og sást í nýliðnu Íslandsmóti svo þetta reddast pottþétt.

Dagný Ívars er laus og liðug svo það er um að gera að reyna freista hennar!

Leiknar verða tvær umferðir og lýkur keppninni um miðjan ágúst.

Leikdagar eru á fimmtudögum frá kl 18:30 og fram á kvöld.

Fyrirliðar hafa verið skipaðir og sjá þeir um liðskipan á hverjum leikdegi.

Til að hafa keppnina sem jafnasta eru fyrirliðar hvattir til að velja besta liðið hverju sinni. Það herðir samkeppnina í liðunum og virkar sem hvatning fyrir þá spilara sem eru í neðri hluta stigalistans að æfa vel í sumar.

Umboðsaðilar (Maggi, Raj og Hilmar) og fyrirliðar eru hvattir til að útbúa keppnistreyjur fyrir liðsmenn.

Ef einhverjar spurningar vakna skal ekki hika að senda mótanefnd fyrirspurn. Einnig væri gaman að nota "vegginn" til þess að koma með hugmyndir og heyja andlegar baráttur milli liða,á góðu nótunum að sjálfsögðu. :)


Kv Arnþór

Skrá Afskrá